Bubbi & Mugison - Þorpið.wmv - Video
PUBLISHED:  Mar 08, 2012
DESCRIPTION:
ATH Lagið "Ballaðan Um Bræðurna" & "Óttinn" & "Óskin" komið inn á Youtube.
http://www.youtube.com/watch?v=TeCKESq-0M0
http://www.youtube.com/watch?v=hlbN8Y7btLo
http://www.youtube.com/watch?v=9e_wnz4pERY

og hér er 14 öskur http://www.youtube.com/watch?v=nGWl8sK8XME

Nýtt 2012
Bubbi & Mugison - Þorpið
Þetta lag er komið á tónlist.is http://www.tonlist.is/Music/Album/877627/bubbi_morthens/thorpid/


Þorpið er hér ennþá en frystihúsið fór í gær
fór án þess að kveðja með sína vélar og rær
bryggjan bátavana kvótinn minning ein
fjörunni leyfar af bát fuglar og bein.

Unga fólkið er fyrir sunnan að dreyma
gamla fólkið situr eftir heima
minningar út á fjörðinn streyma
þorpið er að þurkast út

Þar sem malbikið er grasið teygir sig upp úr
fjallahringurinn er orðinn einskonar múr
part úr vetri nær sólin aldrei að skína
á fjörðinn og ljósið er vart sjáanleg lína.

Unga fólkið er fyrir sunnan að vinna
gamla fólkið varð eftir með nál og tvinna
út á firði er enga drauma að finna
þorpið er að þurkast út.

Húsin kosta nokkrar dánar krónur
kannski er hægt að rækt'úr þeim feitar jónur
leikskólinn geymir bergmál hrópandi barna
sem í borginni segja ég fæddist þarna

sem ekkert ungt fólk finnst lengur
bara gamalt lið og naktar fánastengur
á landi er víst enginn happafengur
þorpið er að þurkast út.

Bankakerfið fyrir sunnan féll með látum
en fimmtán árum fyrr hjá okkur útaf bátum
sem voru keyptir og kvótinn seldur suður
þar sem bankamenn átu gullhúðaðar kruður

unga fólkið fór suður til að dreyma
um gullið sem enginn átti heima
og gammar yfir gömlu fólki sveima
Þorpið er að þurkast út

Fjöllin þau standa stara út á fjörðinn
þorpið er að sökkva hægt oní svörðinn
en ég ætla að reyna að rembast einhvað lengur
því konan mín er ólétt það er sagt víst drengur

Hér vill ég vera hér á ég heima
en tækifærinn virðast burtu streyma
það er ekkert rangt við það að dreyma
að þorpið, það hjarni við

Hér vill ég vera hér á ég heima
en tækifærinn burtu bara streyma
það er ekkert rangt við það að dreyma
að þorpið mitt það hjarni við
follow us on Twitter      Contact      Privacy Policy      Terms of Service
Copyright © BANDMINE // All Right Reserved
Return to top