Minning - Björgvin Halldórsson & Mugison - Video
PUBLISHED:  Dec 30, 2010
DESCRIPTION:
Ég áskil mér engan rétt af þessu lagi ®

Lagið er af nýjustu plötu Björgvins, Duet II. Lagið er eftir Bob Dylan og heitir á frummálinu Make You Feel My Love en íslenskan texta gerði Ingibjörg Gunnarsdóttir. Árið 2003 sendi Björgvin Halldórsson frá sér eina af sínum allra vinsælustu og best heppnuðu plötum; Duet. Á henni söng hann dúetta með mörgum af bestu söngvurum yngri kynslóðarinnar
Ásamt Björgvini syngur Mugison hérna.

Texti :
Sumir hverfa fljótt úr heimi hér
skrítið stundum hvernig lífið er,
eftir sitja margar minningar
Þakklæti og trú.

Þegar einhvað virðist þjaka mig
þarf ég bara að sitja og hugsa um þig,
þá er eins og losni úr læðingi
lausnir öllu við.

Þó ég fái ekki að snerta þig
veit ég samt að þú ert hér,
og ég veit að þú munt elska mig
geyma mig og gæta hjá þér.

Og þó ég fengi ekki að þekkja þig
þú virðist alltaf getað huggað mig,
það er eins og þú sért hér hjá mér
og leiðir mig um veg.

Þó ég fái ekki að snerta þig
veit ég samt að þú ert hér,
og ég veit að þú munt elska mig
geyma mig og gæta hjá þér.

Og þegar tími minn á jörðu hér,
liðinn er þá er ég burtu fer,
þá ég veit að þú munt visa veg
og taka á móti mér.
follow us on Twitter      Contact      Privacy Policy      Terms of Service
Copyright © BANDMINE // All Right Reserved
Return to top