DESCRIPTION: Hljómsveitin Mandólín á tónleikum á Cafe Rósenberg 20. febrúar 2016. Mandólín flytur hjartanærandi blöndu af klezmer- og tangótónlist frá ýmsum heimshornum, tónlist sem laðar fram bæði ljúfar og tregafullar tilfinningar. Hljómsveitin er skipuð Guðrúnu Árnadóttur og Elísabetu Indru Ragnarsdóttur á fiðlur, Sigríði Ástu Árnadóttur og Ástvaldi Traustasyni á harmónikur, Óskari Sturlusyni á gítar, Martin Kollmar á klarinett og Alexöndru Kjeld á kontrabassa. Gestasöngkona á tónleikunum var Brynhildur Björnsdóttir.