DESCRIPTION: Texti/ljóð hér fyrir neðan - Lyrics/poem in English below
Lítið ljóð og lag sem ég samdi, spilaði og söng á nokkrum klukkustundum í tilefni af Jólalagakeppni Rásar 2, 2013.
AFTUR HEIM
Það eru víst jólin
en ekki hjá mér
fékk ekki fleiri daga með ykkur
með þér
og nú er hver dagur sem stjörnubjört nótt
sviplaust andlit horfir á mig í kaldri rúðu
ljósin hlægja að mér
geng um göturnar
allir virðast brosa nema ég
snjókorn falla
mjúklega
bara ef ég gæti
klifið hallgrímskirkjuturn
snúið vísunum aftur heim
til þín
nú er nákvæmlega ár
frá þvi þið voruð tekin frá mér
áfram geng ég einn minn veg
A little poem and song that I wrote, composed and recorded in a few hours for the annual Christmas song competition for the radio station Channel 2 (Rás 2) here in Iceland.