Bent - Baraseira - Video
PUBLISHED:  Sep 17, 2015
DESCRIPTION:
BARA AÐ SEGJA ÞÉR ÞAÐ

Texti: Ágúst Bent
Lag: Joe Frazier (Jóhann Karlsson)
Mix: ReddLights
Upptaka: Dj Moonshine

Leikstjórn/klipp: Ágúst Bent
A.D: Haraldur Hrafn Thorlacius
Tökumaður: Arró
AC: Daníel Gylfason
Framleiðandi: Haraldur Hrafn Thorlacius & Dagur Benedikt Reynisson
Aðstoð við framleiðslu: Arnar Benjamín Kristjánsson, Ingi Lár, Gestur Einarsson, Hafsteinn Einarsson & Bjarni Guðmundsson

Föt frá Húrra Reykjavík

Þakkir:
Twilight/Ljósaskipti
Narfi
Árni Gylfasson
Siggi Bahama
RWS
Grandabræður
Skalli Árbæ
Húsdýragarðurinn í mosfellsbæ
Bændur við Hæli
Fljótt og gott
Blásteinn
Emóra


Texti:

Ég blóðþorsta svala
með blóði, vodka og svala
set svo mikið út í drykkinn
að ef ég þarf klaka þarf langjökull að fara
og ég þamba eins og slavar
lifrin er fallega svört
eins og íslenska fjaran
og kona barbapabba ér 
bara-kúda með bala-clava, bara-seira

Ég er ennþá Skríbent baraseira
ég læt þetta ennþá lúkka skítlétt baraseira
ég er bara partígaur, þarf sítrónu og salt í grautinn
ég er baraseira baraseira baraseira
ég er fokking spes, eins og sést baraseira
ég er ekki eins og fólk er flest baraseira
merkilegur, slekk á merkikertum
geri það sem enginn sem þú þekkir getur
baraseira baraseira 
klikk klikk, tek í hrokagikk baraseira
mikið fyrir læti, fyrirmynd og eftirlæti
fíla fyrirsætur sem eru til í fyrir og eftirpartí baraseira 
baraseira
þegar orðinn eldri 
en ég hélt ég yrði
ég held því niðri
… bara-seira!

Ennþá brjálæðingur baraseira
ennþá meiri Orca en háhyrningur baraseira
ég leyfi allt og engu lengur
ég rúlla djúpt, snjóflóð baraseira stórþjóð baraseira
þung þessi skóhljóð baraseira tólf ljón baraseira baraseira
dreginn fyrir dómstól fyrir smá óró baraseira

Sorrí með þessa biðröð en ég stopp' ekki hér
já opn fyrir mér, ég er riddari götunnar, riddari götunnar og hoppa yfir peð.
'áttu sop' handa mér' … fer á legsteininn
blandaðu sjúss og helltu á leiðið,
blandaðu sjúss og helltu á leiðið
er að reyna að komast út og ég þarf eldsneyti
 
Forrystusauðir þurfa hirði
ég tek það á mig
ég held því niðri
þegar orðinn eldri 
en ég hélt ég yrði
ég held því niðri
… bara-seira!

Ég er ennþá Gúgú baraseira
stunda innsetningar ekki skúlptúr baraseira
ég ennþá blóðheitur. og rugla reitum sjóðheitur
baraseira baraseira Farinn eins og Skímó baraseira
síðan það var leitað á mér í fokking frímó baraseira
síðan ég var pínku lítill eins og Skee-Lo baraseira
síðan ég var einhver merkúr ekki kíló baraseira baraseira

Nýbyrjaður, yo varla
beint úr undirgöngunum á mömmu minni inní undirgöngin hjá Skalla
baraseira sorrí mamma
fór í pela, ekki pela… fyrstu orðin voru að panta landa
gullmolar þessarar guðsvoluðu veraldar er að blanda landa í volgan Tomma og Jenna svala

Drykkjuhrútar þurfa hirði
ég tek það á mig
ég held því niðri
þegar orðinn eldri 
en ég hélt ég yrði
ég held því niðri
… bara-seira!
follow us on Twitter      Contact      Privacy Policy      Terms of Service
Copyright © BANDMINE // All Right Reserved
Return to top