Bent - Nietzsche - Video
PUBLISHED:  Feb 19, 2016
DESCRIPTION:
"Ef þú starir í hyldýpið, þá starir hyldýpið aftur á þig."

Beat: Joe Frazier
Mix: ReddLights


Trigger warning: Dóp og póst-módernismi. Ósannar sögur um mig,
hótanir, ofbeldi shit. Þú ert fokking dauður eins og höfundurinn!
Því að hjartað þitt dælir þessum ógeðslega vökva
sem að kemur ef þú hristir ekki tómatsósu flöskuna.
En mitt slær eins og ég; hratt, ákaft og lengi.
Kom trylltur út úr leginu, fæddist með hníf, skar sjálfur á strenginn.
Ég er sverð og skjöldur Íslands, ég er frostið í ánni,
ég er Frosti og Máni, ég er Ingólfur Arnarson svalandi óþerrandi þorsta á kránni.

Pantaði mér tvöfaldan, sagði honum að tvöfaldann.
Hellti honum inn í augntóftina farinn að sjá tvöfalt maður.
Alltof mikill stefán maður, alltof mikill stefán,
en ég lifi þetta af 7 9 13.

Trigger warning: Draumkenndur veruleiki, djammað á hverjum degi,
illskunar fáfengileiki, áfengisveiki, fárveikir drengir.

Sjúkdómur, þungur dómur, allt í góðu

því að mér er hlýtt hér.
Kalt en hlýtt hér.
Starði svo lengi í hyldýpið
það leit undan.
Mér er hlýtt hér.
Kalt en hlýtt hér.
Starði svo lengi í hyldýpið
það leit undan eins og bitch.

Nietsche er bitch yeah!
Nietsche er bitch yeah!
Nietsche er bitch yeah!
Friedrich Nietsche er bitch.

Trigger warning: Heimagerð heimsspeki, heimskulegar mýtur og rugl.
Ennþá fleiri hótanir; þú ert fokking dauður eins og Nietsche og Guð!
ég flyt kvæði, ég flyt fjöll. Trúin flytur út á land.
Gangsta ass guðspjöll, dásamleg dauðsföll, guðlastinu útvarpað.
Exestensjalistar, chill, allt er í góðu lagi.
Lifið er þjáning, ég frelsa þig frá því, fokk hvað ég er góður gæi.
Og ég er með tromp í tilvist og með ás í erminni.
All in sama hvað á hendinni, fokk skynsemi, ég hendi því inn.

Ég er sjússandi snillingur, á blússandi siglingu.
Mér er hlýtt, eins og mávar fylgir flest fólk skipunum,
aðrir fylgja blysunum en allir fylgja byssum.
Þannig að ég er á hundrað hnúta hraða með ofvirkan gikk-fingur.

Trigger warning: Samkvæmis ljónaveiðar, öll full og tóm að innan.
Hortugt ort gort, monthanagal, samt sama hvað óðir piltar.

Sjúkdómur, þungur dómur, allt í góðu

því að mér er hlýtt hér.
Kalt en hlýtt hér.
Starði svo lengi í hyldýpið
það leit undan.
Mér er hlýtt hér.
Kalt en hlýtt hér.
Starði svo lengi í hyldýpið
það leit undan eins og bitch.

Nietsche er bitch yeah!
Nietsche er bitch yeah!
Nietsche er bitch yeah!
Friedrich Nietsche er bitch.
follow us on Twitter      Contact      Privacy Policy      Terms of Service
Copyright © BANDMINE // All Right Reserved
Return to top