Rax Tungl - Hlekkir - Video
PUBLISHED:  Jul 22, 2012
DESCRIPTION:
Rax Tungl : http://www.facebook.com/pages/Rax-Tungl/124905400915431


Rax Tungl - Hlekkir


Lof mér að segja þér hvernig þetta gengur fyrir sig.
Klippt og skorið ferli allt frá vögguni til grafar.
Reyndu hvað þú getur; ekki bíða og sjá hvað setur.
Ef þú bara gefur eftir þá verður ekkert eftir.

Heimurinn hann lýgur að þér fyrsta daginn, annan daginn,
sama lygin, sömu innantómu loforðin.
Heilinn þveginn og fyrr en varir ertu farinn að trúa því að
þetta geti talist frelsi!

En spurðu sjálfa(n) þig:
"Er þetta það sem ég vil gera með líf mitt?
Skilja ekkert eftir nema uppsafnaða peninga og neyslusviðna jörðina."
Ég vona þín vegna þú svarir þessu neitandi því

þetta líf er það eina sem þú átt.
Engin önnur tækifæri til að láta gott af leiða né
hægt að snúa tímanum - skiptum skoðun.
Eins gott að gera þetta rétt í fyrstu tilraun.



~~~CHORUS~~~

Breyttu til sjáðu lífið með nýjum augum.
það er okkar eina von til að frelsa mannsandann úr þessum hlekkjum.
Komdu með. Þetta verður erfitt en saman getum við brotið vítahringinn
og hrutt af stað byltinguni það er það eina sem færir okkur sálarró.



Kannastu við það að finnast þú vera
bundin eins strengjabrúða; spilað með þig alla daga.
Fyrirframákveðið hvað sem að þú gerir
og þó þín sé ekki völin þá er kvölin öll á þínum herðum.

Böndin hulin - ósýnileg í fyrstu -
en þau geta ekki dulist þér þú notar þau á hverjum degi.
Ekki leita langt yfir skammt. Opnaðu veski þitt
þeir blasa við þér prentaðir á silkipappír.

Fokking peningarnir - Þungamiðja vonskunar -
þeir stjórna hverju skrefi, hindra þig og setja afarkosti.
Taka drauma þína hengja þá í spotta og halda
fyrir framan þig sem réttlætingu á þrælkun þinní vinnu.

Enginn dagamunur. Þénar bara, eyðir bara
til þess eins að lifa af í heimi sem er alveg sama.
Nú er mælirinn fullur kominn tími að segja stopp
og taka af skarið.



~~~CHORUS~~~



Drullastu til að fokking vinna fíflið þitt!
Þú getur slakað á þegar þú ert dauður!
Þrælahald í sinni allra verstu mynd.
Þú eyðir bestu árum ævi þinnar hlekkjaður í sömu stöðu.

Af fúsum og frjálsum vilja
þú selur tíma þinn eins og hóra til að
eiga fæði, húsnæði,
skemmtiefni og vímugjafa sem

blinda þig og þína dáleiða og stela tíma.
Undir neinum kringumstæðum máttu lyfta hönd af plóg því
blóð, sviti þinn og tár eru vindurinn í seglum elítunnar sem að
stingur upp á |köku-áti.

Stéttarskipting er aldrei til hins góða.
Ef horft er niður frá toppnum sérðu bara
maura en saman stöndum við
sterkari en nokkuð annað afl í heiminum.




~~~CHORUS~~~
follow us on Twitter      Contact      Privacy Policy      Terms of Service
Copyright © BANDMINE // All Right Reserved
Return to top