PUBLISHED: Oct 08, 2012
DESCRIPTION:
Önnur smáskífa af þriðju breiðskífu Jónasar Sigurðssonar sem kemur út október 2012. Þar sem himin ber við haf.
Texti:
Djúpur er minn hugur eins og hafið
Gat samt aldrei hugsað mig til þín
Sátum föst í sama hugarfari
Sem byrgði okkur sýn, ástin mín
Oft mér birtist mynd á leið að landi
að lífi mínu og hug ég deildi með þér
Veruleikinn meiri reyndist vandi
og vaninn setti lífsreglurnar mér
Sumir finna sína föstu hillu
sjálfur aldrei fann ég þennan frið
Í klettunum ég klifra í leit að syllu
klafinn þungur hangir fastur við
Verst var þó að óviljandi særa
ykkur sem að stóðuð mér þó hjá
Megi lífið farsæld ykkur færa
bráðum þegar farinn verð ég frá
Nú held ég út
Hafið er svart
Hafið er svart
Hafið er svart
Hafið er kalt
Hafið er kalt
Hafið er bjart
og friðsælt
Nánari upplýsingar:
http://www.jonassigurdsson.com
Jónas Sigurðsson ásamt Lúðrasveit Þorlákshafnar
Second single from upcoming album by Jonas Sigurdsson. Released on ZX Oct 2012.
------ CREDITS -----------
Lag: Jónas Sigurðsson
Texti: Jónas Sigurðsson
/ Ásgrímur Ingi Arngrímsson
Stjórn upptöku: Stefán Örn Gunnlaugsson
Mix/Útfærsla: Árni Bergmann Jóhannsson
Myndefni: Þórarinn F. Gylfason
Flytjendur:
Jónas Sigurðsson söngur, trommur, gítar, hljóðgervlar
Stefán Örn: raddir, forritun, kirkjuorgel
Ómar Guðjónsson: gítar
Lúðrasveit Þorlákshafnar: blástur