Ljúft að vera til - Jón Jónsson Þjóðhátíðarlag 2014 - Video
PUBLISHED:  Jun 05, 2014
DESCRIPTION:
Textinn hér fyrir neðan.

Ljúft að vera til - Jón Jónsson

Í Herjólfsdalnum, við lífsins njótum.
Það er svo ljúft að vera til.
Vináttuörvum allt í kring skjótum.
Samveran veitir birtu og yl.

Hér er hamingja, ást og gleði.
Stemmingin í dalnum er svo blíð.
Forréttindi að vera með í,
veisluhöldunum á þjóðhátíð.

Eyja meyja og peyja,lof mér að segja,
ó, hve ljúft það er að vera til.
Eyja meyja og peyja, lof mér að segja
ó, hve ljúft það er að vera til.

Í bleikri brekkunni við syngjum saman.
Svo ljúft að vera þér við hlið.
Í þínum örmum svo hlýtt svo gaman.
Vor bjarta framtíð blasir við.

Hér er hamingja, ást og gleði.
Stemmingin í dalnum er svo blíð.
Forréttindi að vera með í,
veisluhöldunum á þjóðhátíð.

Eyja meyja og peyja,lof mér að segja,
ó, hve ljúft það er að vera til.
Eyja meyja og peyja, lof mér að segja
ó, hve ljúft það er að vera til.

*Lúðrar*

Eyja meyja og peyja,lof mér að segja,
ó, hve ljúft það er að vera til.
Eyja meyja og peyja, lof mér að segja
ó, hve ljúft það er að vera.

Eyja meyja og peyja,lof mér að segja,
ó, hve ljúft það er að vera til.
Eyja meyja og peyja, lof mér að segja
ó, hve ljúft það er að vera til.

Ó, hve ljúft það er að hafa þig
Ó, hve ljúft það er að vera á Þjóðhátíð.
follow us on Twitter      Contact      Privacy Policy      Terms of Service
Copyright © BANDMINE // All Right Reserved
Return to top