Ragnheiður Gröndal & Pálmi Gunnarsson - Frost - Video
PUBLISHED:  Dec 07, 2015
DESCRIPTION:
FROST

Nú vil ég vera heima
og ylja mér við glóð.
Öllum sorgum gleyma
og yrkja kannski ljóð.

Ég ætla að slökkva á síma
og opna frekar blað.
Hvað er helst að frétta?
Nei, þarf ég að vita það?

Þó kólni um tíu stig
og kuldinn bíti
þá hef ég alltaf þig
Þó dimmi og verði kalt
á þessu skeri
við komumst yfir allt.

Ég ætla að finna friðinn
flæða inn í mér
útiloka niðinn
og hjúfra mig að þér.

Við skulum finna núið
sem í tísku er
og ef það virðist snúið
þá byrjar það víst hér...



Höfundar: Ragnheiður Gröndal, Guðmundur Pétursson og Stefán Örn Gunnlaugsson

Flytjendur: Pálmi Gunnarsson, Ragnheiður Gröndal, Guðmundur Pétursson, Stefán Örn Gunnlaugsson, Haukur Gröndal, Einar Scheving & Phil Collins.
follow us on Twitter      Contact      Privacy Policy      Terms of Service
Copyright © BANDMINE // All Right Reserved
Return to top