Geimbleyja - Video
PUBLISHED:  Sep 15, 2012
DESCRIPTION:
Fyrsta smáskífan af væntanlegri plötu frá Dýrðinni.
2012.
Facebook: dyrdin
email: magnusaxelssonkvaran@gmail.com

Árið 2007 ók geimfarinn Lisa Nowak í einum rykk 900 mílur gegnum fimm ríki Bandaríkjanna. Tilefnið var afbrýðissemi, og takmarkið að hefna sín á Colleen Shipman sem hafði stolið elskhuga hennar til nokkurra ára. Meðal vopna sem hún hugðist nota var hamar, loftbyssa og piparúði, hún dulbjó sig og sat fyrir henni á flugvelli í Florida, en árásin misheppnaðist og Lisa fékk makleg málagjöld.

Allt er þetta mjög áhugavert og efni í skáldsögur eitt og sér. Merkilegast við þetta allt er þó að í ökuferðinni til Florida virðist Lisa hafa ráðgert að sleppa pissustoppum til að komast fljótar á milli staða, og til að ekki næðust myndir af henni á öryggismyndavélar á leiðinni. Til að ná þessu takmarki notaðist hún við bleyju ... geimbleyju.
follow us on Twitter      Contact      Privacy Policy      Terms of Service
Copyright © BANDMINE // All Right Reserved
Return to top