Klezmer Kaos Live - Video
PUBLISHED:  Apr 27, 2012
DESCRIPTION:
Frönsk-íslensk verðlaunahljómsveit mætti í Morgunútvarpið í morgun. Hljómsveitin heitir Klezmer Kaos og stofnandi hennar er Heiða Björg Jóhannsdóttir, sem búið hefur í París undanfarin átta ár.
Klezmer Kaos er nýbúin að gefa út sína fyrstu plötu sem kallast Froggy.

Hljómsveitin hefur komið fram um alla Evrópu, tekið þátt í alþjóðlegum keppnum og samið tónlist fyrir ljósvakamiðla í Frakklandi. Heiða kom þessari hljómsveit á koppinn, eftir að hafa verið í tónlistarnámi í París. Hún ákvað þá að setja saman klezmer hljómsveit og fann harmonikkuleikara og trommuleikara í skólanum sínum, og hina meðlimina síðar. Innan þriggja mánaða var hljómsveitin farin að æfa og semja. Klezmer Kaos verður með tónleika á NASA á laugardaginn.
follow us on Twitter      Contact      Privacy Policy      Terms of Service
Copyright © BANDMINE // All Right Reserved
Return to top