aska - draumar rætast ekki - Video
PUBLISHED:  Sep 05, 2014
DESCRIPTION:
tónlistarmyndband eftir úlf logason. kærar þakkir fyrir samvinnuna.

www.gratonar.bandcamp.com / www.facebook.com/gratonar


væntingum fylgja vonbrigði
líkt og skugginn fylgir manninum
til hvers að horfa fram veginn
þegar leiðin liggur niður á við?

þjóðfélagið er leikrit
og hlutverk mitt er sligandi
ætti ég að halda mig afsíðis
eða brosa og vera með?

væntingum fylgja vonbrigði
til hvers að horfa fram á við?
þegar upp er staðið
er lífið langt og leiðinlegt

ævin er sem framliðin stjarna
dauð, þótt sýnileg sé
líkt og skugginn fylgir manninum
er skugginn bergmál dauðans

misgjörðir og iðrun
vega salt
í bágborinni leit
að hugarró
draumar rætast ekki
nema draumar um dauðann
follow us on Twitter      Contact      Privacy Policy      Terms of Service
Copyright © BANDMINE // All Right Reserved
Return to top